Tími breytinga
Lýðræðishreyfingin var stofnuð fyrir rúmum 12 árum til að vinna með hugmyndir að beinu og milliliðalausu lýðræði sem einn stofnenda Ástþór Magnússon kynnti fyrst undir merkinu "Virkjum Bessastaði".
Stjórnlagaþing gæti orðið mikilvægt tækifæri til að koma Íslendingum úr fjötrum fyrirgreiðsluflokkanna. Hættan er að gömlu stjórnmálaklíkurnar yfirtaki þingið með sínu fólki til að koma í veg fyrir að gerðar séu róttækar og nauðsynlegar breytingar til að koma hér á raunverulegu lýðræði.
Kjósendur þurfa að vera vel vakandi á verðinum og láta ekki lýðskrum og misnotkun fjölmiðla blekkja sig í áframhaldandi ánauð gömlu flokkanna.
At vero eos et accusamus
At vero eos et accusamus et iusto odio dignissimos ducimus qui
blanditiis praesentium voluptatum deleniti atque corrupti quos dolores
et quas molestias excepturi sint occaecati cupiditate non provident,
similique sunt in culpa qui officia deserunt mollitia animi, id est
laborum et dolorum fuga. Et harum quidem rerum facilis est et expedita
distinctio. Nam libero tempore, cum soluta nobis est eligendi optio
cumque nihil impedit quo minus id quod maxime placeat facere possimus,
omnis voluptas assumenda est, omnis dolor repellendus.
Beint og milliliðalaust lýðræði

Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.

Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.

Tilbúin frumvörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1. maí og 1.des ár hvert.

Hraðbankakerfið verði nýtt ssem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.

Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.

Þingmenn fari með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.
Nam libero tempore
At vero eos et accusamus et iusto odio dignissimos ducimus qui
blanditiis praesentium voluptatum deleniti atque corrupti quos dolores
et quas molestias excepturi sint occaecati cupiditate non provident,
similique sunt in culpa qui officia deserunt mollitia animi, id est
laborum et dolorum fuga. Et harum quidem rerum facilis est et expedita
distinctio.
Áhugaverð stefnumál
Expand all
Collapse all
-
Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
Hraðbankakerfið verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.
Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.
-
Þingmönnum fækkað í 31.
Landið verði eitt kjördæmi.
Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum.
Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.
-
Virkjum Bessastaði:
Forseti Íslands fái nýtt hlutverk sem alþjóðlegur talsmaður friðar og mannréttinda. (Tengist þeirri hugmynd að á Íslandi rísi friðarháskóli og þróunarmiðstöð lýðræðis, friðar og mannréttinda, friðargæslu Sameinuðu Þjóðanna boðin aðstaða á Keflavíkurflugvelli og forsetaembættið vinni markvisst að því að fá til Íslands tengda starfsemi).
Sed ut perspiciatis
Sed ut perspiciatis unde omnis iste natus error sit voluptatem
accusantium doloremque laudantium, totam rem aperiam, eaque ipsa quae ab
illo inventore veritatis et quasi architecto beatae vitae dicta sunt
explicabo. Nemo enim ipsam voluptatem quia voluptas sit aspernatur aut
odit aut fugit, sed quia consequuntur magni dolores eos qui ratione
voluptatem sequi nesciunt.
All news
Handtekin á Íslenskum landamærum. Mannréttindi lögvarin í stjórnarskrá fótum troðin.
November 23, 2010
Ung kona sem starfar fyrir barnahjálp Friðar 2000 í Argentínu var um helgina handtekin af Schengen landamæravörðum í Madrid á leið sinni til Íslands. Ástþór Magnússon spyr Utanríkisráðherra hvort framkvæmdavaldið sé með Schengen og Evrópusambands samningum að fjarlægja mannréttindi varin í Stjórnarskrá Íslands og vísar í 6 stjórnarskrárbrot sem framin voru á konunni.
Forsagan er að Friður 2000 er að vinna að verkefninu Earthchild.org til hjálpar heimilislausum börnum í Buenos Aires. Yfir fjögur þúsund börn gista nú götur borgarinnar matarlítil og við mikla örbyrgð. Vandamálið hefur nær tvöfaldast síðasta ár.
Íslenska búsáhaldabyltingin sótti fyrirmynd sína til Argentínu en landið varð gjaldþrota árið 2001. Hávær gagnrýni heyrist í Argentínu um aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem sögð er hafa aukið bilið milli ríkra og fátækra með þeim afleiðingum að tugmilljónir manns eru nú atvinnulausir. Margir búa í hreisum í ört stækkandi skuggahverfum Buenos Aires. Vímuefnaneysla, ört vaxandi heimilisofbeldi og örbyrgð hrekur börnin að heiman á strætin.
Unga konan sem starfar fyrir Frið 2000 í Buenos Aires ætlaði að ferðast til Evrópu að kynna verkefnið m.a. á Íslandi og í leiðinni halda jól með móður sinni og systkynum á Spáni.
Þegar konan framvísaði vegabréfi sínu á Schengen landamærunum í Madrid, sem jafnframt eru landamæri Íslands, var hún beðin að sýna nægan gjaldmiðil til framfærslu. Henni var boðið að sýna landamæraverði stöðu bankareiknings í hraðbanka. Af einhverjum ástæðum kom upp tæknivilla í hraðbankanum. Skipti þá engum togum, konan var svipt frelsi og flutt nauðug í gæsluvarðhald. Tekinn var af henni handfarangur, sími og veski.
Konan upplýsti um móður sína og tvö systkyni búsett á Spáni, en móðirin giftist til Spánar í kjölfar efnahagshruns Argentínu. Þegar skýringarnar voru ekki teknar til greina, óskaði konan að hafa samband við Ástþór. Henni var synjað að tala við nokkurn utan fangageymslunnar fyrr en að lokinni yfirheyrslu. Síðan var henni stillt upp framan við lögreglumann og svokallaðan lögmann sem lögreglan sjálf útvegaði. Skrifuð var skýrsla í engu samræmi við aðdraganda málsins eða málflutning konunnar.
Í fjórar klukkustundir reyndi Ástþór síðan að ná símasambandi við landamæraeftirlitið. Lögreglan gaf upp tvö símanúmer en hvorugu var svarað. Haft var samband við varðstjóra landamæraeftirlits í Keflavík sem sagðist ekkert geta gert. Þeir hefðu enga möguleika, símanúmer eða annað til að eiga samskipti við landamæraverði Íslands í Madrid.
Þá var fenginn lögfræðingur til að mæta á flugvöllinn með reiðufé og skjöl sem sönnuðu að konan hefði framfærslu meðan á dvöl hennar stæði. Landamæraeftirlitið tók engin rök gild. Búið væri að ákveða að konan skyldi nauðug send til baka á næstu vél. Einnig var synjað beiðni um sólarhrings frest á meðan leitað væri aðstoðar dómara svo og Íslenska ræðismannsins í Madrid sem staddur var á Ítalíu þennan dag en lýsti sig reiðubúinn að aðstoða strax og hann lenti um hádegi næsta dag.
Lögfræðingurinn Pedro Munoz segir meðhöndlun konunnar á flugvellinum ekki standast lög.
Starfsmaður Iberia flugfélagsins sagðist heldur ekkert geta gert. Gæti ekki talað við landamæraverðina frekar en aðrir. Vissu lítið hvernig staðið væri að aðgerðunum en heyrt að lögreglan væri nú með nýjar skipanir vegna efnahagskreppunnar. Tugir manns væru nú stöðvaðir daglega og sendir nauðugir til baka. Stundum nánast eins og tilviljanakennt á síðustu mínútum fyrir flug væri fólkinu sleppt.
Þriggja manna teymi Íslendinga mætti á Madrid flugvöll áður en vélin fór í loftið, og krafðist viðtals við landamæraeftirlitið. Því var einnig synjað með þeim boðum að enginn fengi viðtal við landamæraverði. Aftur bent á sömu símanúmer og ekki svarað. Nokkrum mínútum fyrir brottför flutti síðan lögreglan ungu konuna ásamt sjö öðrum frelsissviptum einstaklingum um borð í vélina.
Ástþór Magnússon átti í gær fund með ræðismanni Íslands í Madrid og hefur í kjölfarið sent Össurri Skarphéðinssyni bréf og spyr hvort Íslensk stjórnvöld með aðild sinni að Schengen hafi afsalað eða fórnað stjórnarskrárbundnum mannréttindum. Hvort innganga í Evrópusambandið muni leiða til afsals stjórnarskrárbundinna réttinda. Hvort málsmeðferð konunnar samræmist Íslensku þjóðfélagsmynstri og gestrisni. Hvort meðhöndlun ferðamanna sem réttindarlausar skepnur og virðingarleysi fyrir fjölskyldutengslum þeirra samrýmist hagsmunum Íslenskrar ferðaþjónustu.
______________________
Bréf til Utanríkisráðherra.pdf
______________________
Ljósmyndir:
Unga konan með systkynum sínum á Spáni
Frambjóðendur til Stjórnlagaþings, Ástþór Magnússon (7176) og Jón Pétur Líndal hitta ræðismann Íslands í Madrid
______________________
Nánari upplýsingar veita:
Ástþór Magnússon - Sími 4962000 og 0034 693776990
Pedro Francisco Munoz Lorite Abogade - Sími 0034 913149016 og 0034 629563030
Trúr hugsjón um nýtt og betra Ísland. Enginn kaupir mig. Enginn þaggar niður í mér. Hætti ekki fyrr en ég hef unnið mitt verk eða kominn undir græna torfu.
Sá spillinguna fyrr en aðrir. Ómyrkur í máli strax árið 1996 er ég sagði í forsetakosningum landinu "stjórnað af huldumönnum sem væru að arðræna þjóðina". Kallaði stjórnmálaflokk "Spilltasta greni landsins". Fjármálakerfið væri ónýtt, bankar og kauphallir myndu hrynja eins og spilaborg.
Reynt að gera boðskap minn tortryggilegan í fjölmiðlum. Skopmyndir birtar. Augun sem sáu spillinguna gerð tortryggileg. Kettir sagðir hlaupa undir sófa er ég birtist í sjónvarpi. Keisarinn í nýju fötunum reyndi að þagga mig niður.
Nú þarf ég þinn stuðning á Stjórnlagaþing með hugmyndafræðina sem ég hef unnið með í 15 ár, m.a. beint lýðræði, skilvirkari stjórnsýslu, fækkun þingmanna, þjóðin njóti sjálf arðs auðlinda, Ísland verði málsvari friðar og tjáningafrelsis, réttlæti í öndvegi og fátækt útrýmt. Nánar hér
Þína hugmynd á þing
Stjórnlagaþing gæti orðið mikilvægt tækifæri til að koma Íslendingum úr fjötrum fyrirgreiðsluflokkanna. Spyrna þarf gegn því að gömlu stjórnmálaklíkurnar yfirtaki þingið með sínu fólki til að koma í veg fyrir að gerðar séu róttækar og nauðsynlegar breytingar til að koma hér á raunverulegu lýðræði. Kjósendur þurfa að vera vel vakandi á verðinum og láta ekki lýðskrum og misnotkun fjölmiðla blekkja sig í áframhaldandi ánauð gömlu flokkanna.
Á austurvollur.is geta frambjóðendur til Stjórnlagaþings kynnt stefnumál sín, og allir landsmenn sent inn tillögur að stjórnarskrárbreytingum, rætt þær og kosið um bestu hugmyndirnar á systurvefnum almannathing.is.