All news

Handtekin á Íslenskum landamærum. Mannréttindi lögvarin í stjórnarskrá fótum troðin.

November 23, 2010

Ung kona sem starfar fyrir barnahjálp Friðar 2000 í Argentínu var um helgina handtekin af Schengen landamæravörðum í Madrid á leið sinni til Íslands. Ástþór Magnússon spyr Utanríkisráðherra hvort framkvæmdavaldið sé með Schengen og Evrópusambands samningum að fjarlægja mannréttindi varin í Stjórnarskrá Íslands og vísar í 6 stjórnarskrárbrot sem framin voru á konunni. 

Forsagan er að Friður 2000 er að vinna að verkefninu Earthchild.org til hjálpar heimilislausum börnum í Buenos Aires. Yfir fjögur þúsund börn gista nú götur borgarinnar matarlítil og við mikla örbyrgð. Vandamálið hefur nær tvöfaldast síðasta ár. 

Íslenska búsáhaldabyltingin sótti fyrirmynd sína til Argentínu en landið varð gjaldþrota árið 2001. Hávær gagnrýni heyrist í Argentínu um aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem sögð er hafa aukið bilið milli ríkra og fátækra með þeim afleiðingum að tugmilljónir manns eru nú atvinnulausir. Margir búa í hreisum í ört stækkandi skuggahverfum Buenos Aires. Vímuefnaneysla, ört vaxandi heimilisofbeldi og örbyrgð hrekur börnin að heiman á strætin. 

Unga konan sem starfar fyrir Frið 2000 í Buenos Aires ætlaði að ferðast til Evrópu að kynna verkefnið m.a. á Íslandi og í leiðinni halda jól með móður sinni og systkynum á Spáni. 

Þegar konan framvísaði vegabréfi sínu á Schengen landamærunum í Madrid, sem jafnframt eru landamæri Íslands, var hún beðin að sýna nægan gjaldmiðil til framfærslu. Henni var boðið að sýna landamæraverði stöðu bankareiknings í hraðbanka. Af einhverjum ástæðum kom upp tæknivilla í hraðbankanum. Skipti þá engum togum, konan var svipt frelsi og flutt nauðug í gæsluvarðhald. Tekinn var af henni handfarangur, sími og veski. 

Konan upplýsti um móður sína og tvö systkyni búsett á Spáni, en móðirin giftist til Spánar í kjölfar efnahagshruns Argentínu. Þegar skýringarnar voru ekki teknar til greina, óskaði konan að hafa samband við Ástþór. Henni var synjað að tala við nokkurn utan fangageymslunnar fyrr en að lokinni yfirheyrslu. Síðan var henni stillt upp framan við lögreglumann og svokallaðan lögmann sem lögreglan sjálf útvegaði. Skrifuð var skýrsla í engu samræmi við aðdraganda málsins eða málflutning konunnar. 

Í fjórar klukkustundir reyndi Ástþór síðan að ná símasambandi við landamæraeftirlitið. Lögreglan gaf upp tvö símanúmer en hvorugu var svarað. Haft var samband við varðstjóra landamæraeftirlits í Keflavík sem sagðist ekkert geta gert. Þeir hefðu enga möguleika, símanúmer eða annað til að eiga samskipti við landamæraverði Íslands í Madrid. 

Þá var fenginn lögfræðingur til að mæta á flugvöllinn með reiðufé og skjöl sem sönnuðu að konan hefði framfærslu meðan á dvöl hennar stæði. Landamæraeftirlitið tók engin rök gild. Búið væri að ákveða að konan skyldi nauðug send til baka á næstu vél. Einnig var synjað beiðni um sólarhrings frest á meðan leitað væri aðstoðar dómara svo og Íslenska ræðismannsins í Madrid sem staddur var á Ítalíu þennan dag en lýsti sig reiðubúinn að aðstoða strax og hann lenti um hádegi næsta dag. 

Lögfræðingurinn Pedro Munoz segir meðhöndlun konunnar á flugvellinum ekki standast lög. 

Starfsmaður Iberia flugfélagsins sagðist heldur ekkert geta gert. Gæti ekki talað við landamæraverðina frekar en aðrir. Vissu lítið hvernig staðið væri að aðgerðunum en heyrt að lögreglan væri nú með nýjar skipanir vegna efnahagskreppunnar. Tugir manns væru nú stöðvaðir daglega og sendir nauðugir til baka. Stundum nánast eins og tilviljanakennt á síðustu mínútum fyrir flug væri fólkinu sleppt. 

Þriggja manna teymi Íslendinga mætti á Madrid flugvöll áður en vélin fór í loftið, og krafðist viðtals við landamæraeftirlitið. Því var einnig synjað með þeim boðum að enginn fengi viðtal við landamæraverði. Aftur bent á sömu símanúmer og ekki svarað. Nokkrum mínútum fyrir brottför flutti síðan lögreglan ungu konuna ásamt sjö öðrum frelsissviptum einstaklingum um borð í vélina. 

Ástþór Magnússon átti í gær fund með ræðismanni Íslands í Madrid og hefur í kjölfarið sent Össurri Skarphéðinssyni bréf og spyr hvort Íslensk stjórnvöld með aðild sinni að Schengen hafi afsalað eða fórnað stjórnarskrárbundnum mannréttindum. Hvort innganga í Evrópusambandið muni leiða til afsals stjórnarskrárbundinna réttinda. Hvort málsmeðferð konunnar samræmist Íslensku þjóðfélagsmynstri og gestrisni. Hvort meðhöndlun ferðamanna sem réttindarlausar skepnur og virðingarleysi fyrir fjölskyldutengslum þeirra samrýmist hagsmunum Íslenskrar ferðaþjónustu. 

______________________

Bréf til Utanríkisráðherra.pdf

______________________

Ljósmyndir: 

Unga konan með systkynum sínum á Spáni

Frambjóðendur til Stjórnlagaþings, Ástþór Magnússon (7176) og Jón Pétur Líndal hitta ræðismann Íslands í Madrid

______________________

Nánari upplýsingar veita: 

Ástþór Magnússon - Sími 4962000 og 0034 693776990 

Pedro Francisco Munoz Lorite Abogade - Sími 0034 913149016 og 0034 629563030

Facebook Twitter DZone It! Digg It! StumbleUpon Technorati Del.icio.us NewsVine Reddit Blinklist Add diigo bookmark

Comments 4

  1. Rakhi 03 Apr

    Eyvonne - I cried when I saw my son and his beautiful wife to be. If you guys only knew what an aneswr to pray this is. Thank you Kathy for capturing the love that they have for one another.
  2. low car insurance 05 Apr

    THIS TEAM IS THAT ONE TEAM THAT KEEPS ME HAPPY AND ON MY GAME I LOVE WHAT YALL BRING NOT JUST DANCEN BUT THE HART WITH THE ART IM DONE THES PICS LOOKS LIKE A BOOK THAT I ALWAYS WONTED TO FIND AS A KID BUT STRUTTERS HAHAHA ! NO BUT 4 REAL WHAT !THE GROUP OF THE YEAR RIGHT HERE FROM ME POPTART
  3. auto insurance quotes 12 Apr

    Eyvonne - I cried when I saw my son and his beautiful wife to be. If you guys only knew what an answer to pray this is. Thank you Kathy for capturing the love that they have for one another.
  4. homeowners insurance quotations 20 Apr

    Ég mótmæli því að þú takir dótið út. Átt að láta það standa, hiklaust, en biðja afsökunar ef þú telur þörf á slíku. Sjálfum fannst mér skrif þín einkennast af því að þú þekktir ekki beint til efnisins en það þurfa ekki allir að vera fróðir um allt. Sjálfur veit ég lítið um innflytjendalöggjöf í Danmörku en hef fengið að kynnast ýmsu um fæðingar síðustu fimm ár.

Post a comment

  1. Formatting options
       
     
     
     
     
       
  • Stjórnlagaþing HugmyndaBanki

    Austurvollur.is er samskiptavefur tengdur inná Facebook með hugmyndabanka þar sem landsmenn geta sent inn tillögur að stjórnarskrárbreytingum, rætt þær og kosið um bestu hugmyndirnar.

    Austurvollur.is er opinn öllum frambjóðendum til Stjórnlagaþings að kynna sín framboð án endurgjalds.

    Aðstandendur vefsins vonast til að viðtæk þátttaka verði meðal almennings í undirbúningi Stjórnlagaþings, og frambjóðendur sameinist um að koma á beinu og milliliðalausu lýðræði í landinu.

    Stjórnlagaþing gæti orðið mikilvægt tækifæri til að koma Íslendingum úr fjötrum fyrirgreiðsluflokkanna. Spyrna þarf gegn því að gömlu stjórnmálaklíkurnar yfirtaki þingið með sínu fólki til að koma í veg fyrir að gerðar séu róttækar og nauðsynlegar breytingar til að koma hér á raunverulegu lýðræði. 

    Kjósendur þurfa að vera vel vakandi á verðinum og láta ekki lýðskrum og misnotkun fjölmiðla blekkja sig í áframhaldandi ánauð gömlu flokkanna.

    Settu inn þínar hugmyndir um stjórnarskrárbreytingar á www.austurvollur.is

    2010
    Oct
    12