Austurvollur.is er samskiptavefur tengdur inná Facebook með hugmyndabanka þar sem landsmenn geta sent inn tillögur að stjórnarskrárbreytingum, rætt þær og kosið um bestu hugmyndirnar.
Austurvollur.is er opinn öllum frambjóðendum til Stjórnlagaþings að kynna sín framboð án endurgjalds.
Aðstandendur vefsins vonast til að viðtæk þátttaka verði meðal almennings í undirbúningi Stjórnlagaþings, og frambjóðendur sameinist um að koma á beinu og milliliðalausu lýðræði í landinu.
Stjórnlagaþing gæti orðið mikilvægt tækifæri til að koma Íslendingum úr fjötrum fyrirgreiðsluflokkanna. Spyrna þarf gegn því að gömlu stjórnmálaklíkurnar yfirtaki þingið með sínu fólki til að koma í veg fyrir að gerðar séu róttækar og nauðsynlegar breytingar til að koma hér á raunverulegu lýðræði.
Kjósendur þurfa að vera vel vakandi á verðinum og láta ekki lýðskrum og misnotkun fjölmiðla blekkja sig í áframhaldandi ánauð gömlu flokkanna.
Settu inn þínar hugmyndir um stjórnarskrárbreytingar á www.austurvollur.is