Our products

Expand all

  • Company CMS

  • Toolbox

  • CRM

  • ERP

  • Chki riki

  • Bank software

Áhugaverð stefnumál

  • Beint og milliliðalaust lýðræði

    Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum. 

    Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði. 

    Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert. 

    Hraðbankakerfið verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.  

    Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi. 

    Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

  • Breytingar á Alþingi og ríkisstjórn

    Þingmönnum fækkað í 31. 

    Landið verði eitt kjördæmi. 

    Þingmenn verði valdir í persónukosningum. 

    Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. 

    Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er. 

    Ráðherrar sitji ekki á Alþingi. 

    Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

  • Embætti Forseta Íslands

    Virkjum Bessastaði: 

    Forseti Íslands fái nýtt hlutverk sem alþjóðlegur talsmaður friðar og mannréttinda. (Tengist þeirri hugmynd að á Íslandi rísi friðarháskóli og þróunarmiðstöð lýðræðis, friðar og mannréttinda, friðargæslu Sameinuðu Þjóðanna boðin aðstaða á Keflavíkurflugvelli og forsetaembættið vinni markvisst að því að fá til Íslands tengda starfsemi).