Um vefinn
Þetta vefsvæði var sett upp af Lýðræðishreyfingunni sem ókeypis þjónusta við frambjóðendur til Stjórnlagaþings og til að greiða fyrir tillögum um stjórnarskrárbreytingar frá almenningi.
Á vefnum www.austurvollur.is geta frambjóðendur fengið ókeypis heimasíðu til að kynna framboð sín, með sjálfvirkum tengingum við Facebook og Bloggsíðu og aðstöðu til að senda fréttatilkynningar til fjölmiðla.
Á vefnum www.almannathing.is er hýstur HugmyndaBanki fyrir Stjórnlagaþing.
Saga og Boðskapur Lýðræðishreyfingarinnar
Saga Lýðræðishreyfingarinnar
Lýðræðishreyfingin var stofnuð árið 1998 þegar hópur einstaklinga hafði samband við Ástþór Magnússon um framboð til alþingis, en Ástþór hafði hvatt til þess í forsetakosningum 1996 að Íslendingar hæfu þróun á beinu og milliliðalausu lýðræði. Eftir okkur fundarhöld var ákveðið að ekki væri tímabært að koma fram með slíkt framboð á þeim tíma. Ólíklegt var talið að nægur hljómgrunnur yrði meðal þjóðarinnar fyrir þeim rótttæku breytingum sem Lýðræðishreyfingin boðaði fyrr en eftir að hagkerfishrunið sem Ástþór spáði fyrir um í forsetakosningunum hefði átt sér stað. Einnig var ljóst að aðgengi að fjölmiðlum var mjög takmarkað vegna strangrar hagsmunagæslu ríkjandi stjórnvalda og stuðningsmanna forseta Íslands sem gerðu allt til að hindra að boðskapur Ástþórs kæmist óbrenglaður til þjóðarinnar en hann hafði ítrekað varað við spillingu í stjórnkerfinu.
Boðskapur Lýðræðishreyfingarinnar
Nú horfir Íslenska þjóðin á uppskeruna úr spilltu flokkakerfi og ráðherraræði. Nú má búast við að fjölmörg eyru hafi opnast á meðal landsmanna og hljómgrunnur gæti nú skapast um að umbylta Íslenskum stjórnmálum til forystu í lýðræðis- og friðarmálum. Ekki aðeins er það mikilvægt skref til að leysa úr stjórnarkreppu hér heima, úr getur sprottið mikilvæg útflutningsgrein með þúsundum starfsgilda.
- Myndatexti: Myndin að ofan er frá heimsókn Johan Galtung höfunds handbóka S.Þ. í friðarsamningum, þegar hann í aðdraganda forsetakosninga 2004 flutti erindi í Háskóla Íslands um hvernig forseti Íslands gæti valdið straumhvörfum í friðarmálum og lýðræði á alþjóða vettvangi.