Framboð til Stjórnlagaþings

Ástþór Magnússon

Hef margvíslegt til málanna að leggja á Stjórnlagaþingi.

Ástþór Magnússon 7176Stórnlagaþing gæti skapað tækifæri að kynna betur og vinna úr hugmyndum mínum um beint og milliliðalaust lýðræði, endurskipulagningu stjórnsýslu og forsetaembættis. 

Hugmyndir um beint lýðræði og nýtt hlutverk forseta Íslands kynnti ég fyrst árið 1995 m.a. í bók sem þá kom út, síðan í ritinu „Virkjum Bessastaði“ dreift á öll heimili landsins í aðdraganda forsetakosninga 1996. Aftur árið 2004 og svo í framboði Lýðræðishreyfingarinnar við alþingiskosningar 2009. 

Mér er kært að sjá að fræin sem ég hef sáð hér s.l. 15 ár hafa nú vakið marga fleiri til umhugsunar um beint lýðræði. 

Með framboði mínu til Stjórnlagaþings vonast ég til þess að geta orðið að liði við mótun nýrrar stjórnarskrár sem færir lýðræðið til þjóðarinnar.

Menntun og starfsreynsla

Landspróf, Verslunarskóli Íslands, Diploma frá Medway College of Art and Design í auglýsingaljósmyndun/markaðsfræði, enskupróf frá Oxford University. Ljósmyndagerð/póstverslun Íslandi, Færeyjum Danmörku 1974-1983. Stofnaði Eurocard á Íslandi 1979. Síðan ýmis starfsemi m.a. hönnun og sala gagnvirkra upplýsingakerfa í Evrópu, flugrekstur, netfyrirtækin islandus.com, goldbank.eu og fleira.

Félagsstarf og pólitík

Ástþór stofnaði Frið 2000 árið 1995 og var einn af stofnendum Lýðræðishreyfingarinnar árið 1998, í kjölfar þess að hafa kynnt hugmyndir um beint og milliliðalaust lýðræði sem forsetaframbjóðandi 1996. Í forsetakosningunum talaði Ástþór um heim græðgi, valdapots, svika og pretta og sagði Ísland lent í heljargreipum huldumanna sem væru að arðræna þjóðina. Hagkerfið myndi hrynja vegna spillingar í bankakerfinu og fjármálamarkaðir væru að þróast í óábyrg spilavíti. Þörf væri á verulegri endurskoðun og uppstokkun sem Ástþór vildi beita sér fyrir sem þverpólitískt afl frá Bessstöðum. Þetta virtist snerta valdamikla aðila í landinu því mikill undirróður hófst gegn Ástþóri og boðskap Friðar 2000 í kjölfarið. Ástþór hefur á s.l. 15 árum ítrekað vakið athylgi á tækifærum með þróun á beinu lýðræði m.a. með hugmyndum um Reykholtsskóla sem friðarháskóla, og Keflavíkurflugvöll sem miðstöð alþjóðlegrar friðargæslu og þróunarmiðstöð lýðræðis.  Nánar um Ástþór

Framboð til Stjórnlagaþings

Ástþór Magnússon Wium

Áhugaverð stefnumál

Expand all

  • Beint og milliliðalaust lýðræði

  • Breytingar á Alþingi og ríkisstjórn

  • Embætti Forseta Íslands