Framboð til Stjórnlagaþings

6791  Jón Pétur Líndal

Jón Pétur Líndal

Jón Pétur Líndal býður sig fram til Stjórnlagaþings. Jón Pétur er 45 ára frá Holtastöðum í Langadal í Austur Húnavatnssýslu. Samvinnuskólapróf 1982.

Starfaði við sveitastjórnarmál á árunum 1986-1994. Stofnaði ásamt fleiru Öryggismiðstöð Íslands 1995 og var fyrsti stjórnarformaður fyrirtækisins. Hefur s.l. áratug starfað sem byggingarverktaki. 

Á 3 dætur með f.v. sambýliskonu, núverandi sambýliskona er Sigurbjörg Jónsdóttir. 

Jón Pétur er formaður Lýðræðishreyfingarinnar, var í framboði í Norðvesturkjördæmi við Alþingiskosningarnar 2009 og er nú í framboði til Stjórnlagaþings með því markmiði að kynna beint og milliliðalaust lýðræði.

Mínar áherslur:

1. 

2. 

3. 


Framboð til Stjórnlagaþings

6791  Jón Pétur Líndal

Menntun / starfsreynsla

Samvinnuskólapróf 1982. Sveitastörf frá barnæsku til fullorðinsára. Skrifstofustörf 1982-1986. Sveitarstjóri 1986-1995. Aðili að stofnun Öryggismiðstöðvar Íslands 1995. Starfaði við alifuglarækt til 2003. Verktaki í dag.

Hvers vegna býð ég mig fram til stjórnlagaþings?

Ég vil vinna að lýðræðisumbótum.
Ég vil efla eignarréttinn.
Ég vil nútímavæða stjórnarfarið.
Ég vil leyfa landsmönnum að taka beinan þátt í stjórnun landsins þegar þeir æskja þess.
Ég vil að allar meiri háttar ákvarðanir um hagsmuni þjóðarinnar séu bornar undir kjósendur.
Ég vil hemja óheftar ríkisábyrgðir á einkarekstri og fjármálastarfsemi.
Ég vil stjórnarskrá sem ver landsmenn fyrir braski með auðlindir landsins og almannafé.
Ég vil stjórnarskrá sem leiðir okkur til betri framtíðar.
Ég vil ná sambandi við almenning með hugmyndabanka vegna stjórnarskrár á heimasíðu minni og fara með ykkar hugmyndir inn á stjórnlagaþing.
Þess vegna býð ég mig fram til stjórnlagaþings.

Ítarefni:

jonlindal.blog.is