Framboð til Stjórnlagaþings
Við skorum á almenning að taka virkan þátt í starfi Stjórnlagaþings, jafnvel með eigin framboði.
Lýðræðishreyfingin hefur sett upp vefinn www.austurvollur.is til að aðstoða þá einstaklinga sem þess óska að kynna framboð sín til Stjórnlagaþings.
Bjóðum frambjóðendum eftirfarandi ókeypis aðstoð:
1. Setja upp heimasíðu til að kynna framboðið með einfaldri slóð: www.austurvollur.is/þittnafn
2. Tengingu síðunnar við Facebook
3. Þátttöku í HugmyndaBanka fyrir Stjórnlagaþing
4. Dreifingu á fréttatilkynningum framboðsins
Hér er sýnishorn af framboðssíðu: www.austurvollur.is/lindal
Frambjóðendur:
Setja upp framboðssíðu:
Til að setja upp framboðssíðu á austurvollur.is sendir frambjóðandi upplýsingar um framboð sitt á netfangið frambod@austurvollur.is með eftirfarandi upplýsingum eða með link þar sem upplýsingarnar er að finna:
1. Nafn frambjóðanda, kennitölu og þær upplýsingar sem eiga að birtast um frambjóðanda á síðunni
2. Helstu stefnumál sem eiga að birtast á síðunni
3. Ljósmynd
4. Link á Facebook síðu framboðsins/frambjóðanda (Við getum einnig sett upp nýja Facebook síðu sé þess óskað)
5. Link á bloggsíðu frambjóðanda